Merkasta hljómsveit sögunnar

Ólafur Páll Gunnarsson útvarpsmaður í Rokklandi.
Ólafur Páll Gunnarsson útvarpsmaður í Rokklandi. mb.is/Sigurður Bogi

„Bítlarnir breyttu öllu. Þetta finnur maður vel í Liverpool en þar er sögu hljómsveitarinnar gert hátt undir höfði með söfnum, skoðunarferðum, tónlistarviðburðum og minjagripasölu. Að tala um Bítlaborgina á vel við,“ segir Ólafur Páll Gunnarsson, útvarpsmaður í Rokklandi.

Hann var fararstjóri í Bítlatúr til Liverpool í Bretlandi um síðustu helgi þar sem söguslóðir The Beatles voru heimsóttar. Ferðaskrifstofan TA-sport stóð að ferðinni í samvinnu við Moggaklúbbinn.

Ólafur Páll segir að Bítlarnir séu merkasta hljómsveit sögunnar; númer eitt hvernig sem á það er litið. Þáttaskil hafi orðið þegar fyrsta stóra platan þeirra, Please Please Me, kom út 22. mars 1963. Á miðvikudag í næstu viku eru því liðin 60 ár frá því platan kom út og þeirra tímamóta verður væntanlega minnst víða.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu sem kom út í gær.

Klúbburinn í kjallaranum þar sem Bítlarnir byrjuðu.
Klúbburinn í kjallaranum þar sem Bítlarnir byrjuðu.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson