Á rómantísku stefnumóti í New York-borg

Selena Gomez og Zayn Malik eru sögð hafa deilt ófáum …
Selena Gomez og Zayn Malik eru sögð hafa deilt ófáum kossum á rómantísku stefnumóti í New York-borg á dögunum. Samsett mynd

Orðrómur um rómantík milli Selenu Gomez og Zayn Malik hefur yfirtekið samfélagsmiðla eftir að sást til þeirra á stefnumóti í New York-borg á dögunum. 

Klarissa Garcia, gestgjafi á veitingastað á Manhattan sem fræga fólkið elskar, segir samstarfskonu sína hafa orðið vitni af kvöldverðinum. Hún birti TikTok-myndskeið um stefnumótið sem hefur gert allt vitlaust. 

Kossaflens yfir kvöldmatnum

Að sögn Garcia gengu Gomez og Malik inn á veitingastaðinn hönd í hönd. Þau sátu á borði sem staðsett var á miðjum veitingastaðnum og deildu ófáum kossum yfir kvöldmatnum. Þá eru þau sögð hafa verið þar í rúmlega tvær klukkustundir áður en þau héldu út.

Aðdáendur þeirra ráku svo upp stór augu þegar þau sáu að Gomez og Malik væru byrjuð að fylgja hvort öðru á Instagram. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson