Samantha Jones mætir aftur á skjáinn

Kim Cattrall.
Kim Cattrall. mbl.is/BANG ShowBiz

Nú geta aðdáendur þáttanna Beðmál í borginni tekið gleði sína því leikkonan Kim Cattrall sem varð heimskunn fyrir túlkun sína á Samönthu Jones mun stíga inn í hlutverkið á ný í annarri þáttaröð And Just Like That.

Cattrall, sem hefur átt í mjög opinberri deilu við leikkonuna Söruh Jessicu Parker, sem fer með hlutverk Carrie Bradshaw, mætti á tökustað í mars. Öllu var haldið mjög leyndu og vissu flestir starfsmenn þáttanna ekki af komu Cattrall, enda var senunni haldið utan handritsins og nafn leikkonunnar hvergi sjáanlegt. 

Ætlaði aldrei að leika hlutverkið aftur

Parker og Cattrell áttu í stöðugum illdeilum og voru óhóflegar kröfur þeirra síðarnefndu víst ein af ástæðum þess að þriðja kvikmyndin af Beðmálum í borginni fór aldrei áleiðis í framleiðslu árið 2017. 

Nokkrum árum seinna þegar ákveðið var að hefja upptökur á nýrri seríu kaus Cattrall að snúa ekki aftur enda komin með nóg af umhverfinu í kringum þættina. Leikkonan kom þó opinberlega fram og sagðist aldrei hafa verið beðin um að taka þátt í nýju seríunni. „Ég gerði tilfinningar mínar mjög ljósar eftir það sem átti að verða þriðja kvikmyndin, ég komst svo að þessu með þættina eins og allir aðrir – á samfélagsmiðlum,“ sagði Cattrall í viðtali við Variety árið 2022. 

Michael Patrick King, handritshöfundur og framleiðandi, sagði sama ár og við sama miðil: „Ef það væru töfrar þá væri hreint frábært að fá Samönthu aftur. Ég geri mér þó engar raunverulega væntingar um að Kim Cattrall birtist á ný.“

Einhverjir töfrar liggja í loftinu þar sem ósk King rættist og fá aðdáendur þáttanna að sjá fjórmenningana sameinaða á skjánum í sumar en tökum lauk hinn 28. mars og verða þeir frumsýndir 22. júní á HBO Max. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson