Neistinn kviknaður á ný eftir fjögur ár

Maya Jama og Stormzy eru byrjuð saman á ný rúmum …
Maya Jama og Stormzy eru byrjuð saman á ný rúmum fjórum árum eftir að leiðir þeirra skildu. Samsett mynd

Sjónvarpskonan Maya Jama og tónlistarmaðurinn Stormzy eru byrjuð saman aftur fjórum árum eftir dramatísk sambandsslit þeirra. 

Orðrómur um að Jama og Stormzy væru að stinga saman nefjum á ný fór á flug í síðustu viku og hafa margir velt því fyrir sér hvort neistinn sé kviknaður á ný. 

Jama og Stormzy eru í rómantísku fríi á Grikklandi um þessar mundir, en talið er að ferðin sé síðbúin afmælisgjöf til Jama. Parið hefur nú staðfest orðróminn með myndum sem birtust á Daily Mail, en þar sjást þau ganga um göturnar hönd í hönd og virðast vera alsæl hvort með annað. 

Parið byrjaði saman árið 2015 og var saman í fjögur ár áður en leiðir skildu árið 2019. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Reyndu að hafa hemil á löngun þinni til að koma illa fram í dag, sama hversu innilega þú telur aðra eiga það inni hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Reyndu að hafa hemil á löngun þinni til að koma illa fram í dag, sama hversu innilega þú telur aðra eiga það inni hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg