Það var mikil stemning á Söngvakeppni sjónvarpsins í Laugardalshöllinni í kvöld en sigurvegari keppninnar var reynsluboltinn Hera Björk, sem flutti lagið Scared of Heights.
Hera hafði betur gegn tvíeykinu Væb, Anítu, Siggu Ózk og Bashar Murad.
Landsmenn ættu margir að kannast við Heru en hún tók meðal annars þátt í Eurovision fyrir Íslands hönd árið 2010, þá með lagið Je ne sais quoi.
Sigurvegarinn Hera Björk flutti lagið Scared of Heights en hún er landsmönnum kunnug, enda keppti hún í Eurovision árið 2010.
mbl.is/Eggert Jóhannesson
Selma Björnsdóttir söng lagið sitt All out of Luck, einmitt 25 árum eftir að hún keppti með lagið í Eurovision.
mbl.is/Eggert Jóhannesson
„Into the Atmosphere“ heitri lag Siggu Ózkar, sem steig síðust upp á svið í fyrri umferð úrslitanna.
mbl.is/Eggert Jóhannesson
Þátttaka Palestínumannsins Bashar Murad í Söngvakeppninni hefur vakið heimsathygli og skaust Ísland upp í veðbönkum fyrir vikið.
mbl.is/Eggert Jóhannesson
Kynnar Söngvakeppninnar, Unnsteinn Manúel Stefánsson, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson.
mbl.is/Eggert Jóhannesson