Réðist á hjón sem kysstust

Egypta nokkrum blöskraði þegar hann sá ungversk hjón kyssast á götu í Kaíró. Réðist hann á fólkið með hníf að vopni og stakk bæði hjónin áður en hann var yfirbugaður.

Ungversku hjónin voru ásamt fleiri ungverskum ferðamönnum á Khan el-Khalili markaðnum í miðborg Kaíró. Að sögn lögreglu særðist fólkið ekki alvarlega.

Árásarmaðurinn er sagður vera 26 ára og eiga við geðræn vandamál að stríða. Lögregla segir að maðurinn hafi reiðst þegar hann sá hjónin láta vel hvort að öðru en í Egyptalandi er slíkt almennt illa séð á almannafæri.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Á leiðinni upp á toppinn er erfitt að bera sig ekki saman við næsta mann, en þú skalt sleppa því. Með því að vera þú sjálfur færðu íhaldssamara fólk til að fara hjá sér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lotta Luxenburg
2
Sebastian Richelsen
3
Lone Theils
4
Jónína Leósdóttir
5
Guðrún J. Magnúsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Á leiðinni upp á toppinn er erfitt að bera sig ekki saman við næsta mann, en þú skalt sleppa því. Með því að vera þú sjálfur færðu íhaldssamara fólk til að fara hjá sér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lotta Luxenburg
2
Sebastian Richelsen
3
Lone Theils
4
Jónína Leósdóttir
5
Guðrún J. Magnúsdóttir