Villi Neto hjálpar þríeykinu

Stöndum saman | 7. ágúst 2020

Villi Neto hjálpar þríeykinu með unga fólkið

Leikarinn og uppistandarinn Vilhelm Neto birti í dag myndband á twittersíðu sinni sem hann segir að sé tilraun til að hjálpa þríeykinu Ölmu Möller, Víði Reynissyni og Þórólfi Guðnasyni í baráttunni við kórónuveiruna.

Villi Neto hjálpar þríeykinu með unga fólkið

Stöndum saman | 7. ágúst 2020

Vilhelm leggur sitt af mörkum til að aðstoða þríeykið góða …
Vilhelm leggur sitt af mörkum til að aðstoða þríeykið góða með að fá ungt fólk til að virða tveggja metra regluna.

Leikarinn og uppistandarinn Vilhelm Neto birti í dag myndband á twittersíðu sinni sem hann segir að sé tilraun til að hjálpa þríeykinu Ölmu Möller, Víði Reynissyni og Þórólfi Guðnasyni í baráttunni við kórónuveiruna.

Leikarinn og uppistandarinn Vilhelm Neto birti í dag myndband á twittersíðu sinni sem hann segir að sé tilraun til að hjálpa þríeykinu Ölmu Möller, Víði Reynissyni og Þórólfi Guðnasyni í baráttunni við kórónuveiruna.

Á upplýsingafundi Almannavarna í vikunni kom fram að erfitt hefði reynst að fá ungt fólk til að fara eftir tveggja metra reglunni en í myndbandi sínu á Twitter slær Vilhelm á létta strengi og syngur laglínu, sem líklega á að höfða til ungs fólks, sem leggur áherslu á tveggja metra regluna.

Færslu Vilhelms má sjá hér að neðan.

mbl.is

Stöndum saman

Við hjá Árvakri viljum vekja athygli á því sem vel er gert á þessum erfiðu tímum. Ef þú ert með góða sögu af fyrirtækjum og einstaklingum sem eru að gera gott, sendu okkur ábendingu á netfangið stondumsaman@mbl.is.

Stöndum saman