14,5 milljarðar í tekjufalls- og viðspyrnustyrki

Kórónukreppan | 20. maí 2021

Um 14,5 milljarðar króna hafa verið greiddir í tekjufalls- og viðspyrnustyrki, sem ætlað er að aðstoða rekstraraðila, þ.m.t. einyrkja, sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Um 2,4 milljarðar króna hafa verið greiddir í lokunarstyrki. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. 

Ferðaþjónustan hefur orðið fyrir verulegu tekjufalli vegna færri ferðamanna.
Ferðaþjónustan hefur orðið fyrir verulegu tekjufalli vegna færri ferðamanna. Morgunblaðið/Ómar Óskarsson

Um 14,5 milljarðar króna hafa verið greiddir í tekjufalls- og viðspyrnustyrki, sem ætlað er að aðstoða rekstraraðila, þ.m.t. einyrkja, sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Um 2,4 milljarðar króna hafa verið greiddir í lokunarstyrki. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. 

Um 14,5 milljarðar króna hafa verið greiddir í tekjufalls- og viðspyrnustyrki, sem ætlað er að aðstoða rekstraraðila, þ.m.t. einyrkja, sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Um 2,4 milljarðar króna hafa verið greiddir í lokunarstyrki. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. 

Eins og fram hefur komið samþykkti Alþingi í gær frumvörp fjármála- og efnahagsráðherra sem ætlað er að styðja einstaklinga og rekstraraðila á lokametrum baráttunnar við heimsfaraldurinn. Frumvörpin fela í sér framhald og rýmkun viðspyrnu- og lokunarstyrkja, útgreiðslu séreignarsparnaðar, sérstakan barnabótaauka og fleiri aðgerðir til verndar og viðspyrnu vegna heimsfaraldursins. 

„Síðustu mánuði hafa ríflega 90 milljarðar verið greiddir í fjölbreyttan stuðning í úrræðum ríkisstjórnarinnar vegna faraldursins að frátöldum heimildum til útgreiðslu séreignarsparnaðar og aukinnar endurgreiðslu virðisaukaskatts (VSK). Margir hafa nýtt sér slíkar greiðslur og hafa yfir 27 milljarðar króna verið greiddir út af séreignarsparnaði. Nú hefur heimild til úttektar hans verið framlengd út árið. Alls hafa um 7,5 milljarðar króna verið endurgreiddir aukalega af virðisaukaskatti, mest vegna nýbyggingar og viðhalds húsnæðis, eða um 5,3 milljarðar króna,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is