„Ljóst er að málningarvinnan fór úrskeiðis“

Landhelgisgæslan | 8. nóvember 2021

„Ljóst er að málningarvinnan fór úrskeiðis“

Eitthvað virðist hafa farið úrskeiðis þegar Freyja, nýjasta varðskip Landhelgisgæslunnar, var málað í Rotterdam í Hollandi fyrir skömmu. Tóku margir eftir því er skipið kom til heimahafnar á Siglufirði um helgina að málningin var farin að flagna af.

„Ljóst er að málningarvinnan fór úrskeiðis“

Landhelgisgæslan | 8. nóvember 2021

Varðskipið Freyja kemur til Siglufjarðar í fyrsta sinn. Áberandi var …
Varðskipið Freyja kemur til Siglufjarðar í fyrsta sinn. Áberandi var að málningin var farin að flagna af þrátt fyrir að nýbúið væri að mála skipið. mbl.is/Árni Sæberg

Eitthvað virðist hafa farið úrskeiðis þegar Freyja, nýjasta varðskip Landhelgisgæslunnar, var málað í Rotterdam í Hollandi fyrir skömmu. Tóku margir eftir því er skipið kom til heimahafnar á Siglufirði um helgina að málningin var farin að flagna af.

Eitthvað virðist hafa farið úrskeiðis þegar Freyja, nýjasta varðskip Landhelgisgæslunnar, var málað í Rotterdam í Hollandi fyrir skömmu. Tóku margir eftir því er skipið kom til heimahafnar á Siglufirði um helgina að málningin var farin að flagna af.

Ljóst er að þörf er á að mála skipið á ný. Hvenær það verður er hins vegar óvitað enda er slík vinna háð veðurfari.

„Seljandi Freyju bar ábyrgð á að mála skipið með sama málningarkerfi og notað er á öðrum skipum Landhelgisgæslunnar. Ljóst er að málningarvinnan fór úrskeiðis í Rotterdam og við munum fá útskýringar sérfræðinga á því,“ skrifar Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í svari við fyrirspurn blaðamanns.

Skipið var hið glæsilegasta strax eftir málningu í Rotterdam.
Skipið var hið glæsilegasta strax eftir málningu í Rotterdam. Ljósmynd/Guðmundur St. Valdimarsson/Landhelgisgæslan

Ásgeir segir stofnunina hafa samband við seljendur skipsins og krefjast þess að úr þessu verði bætt. „Ekki er hægt að segja til um hvenær skipið verður málað á ný, það mun fara eftir tíðarfari.“

Heyrst hafði að um borð í Freyju hafi verið töluvert magn af málningu þar sem vitað væri að mála þyrfti skipið á ný, en Ásgeir segir það ekki rétt. Þegar skipið lagði frá bryggju í Rotterdam var aðeins um borð afgangsmálning eins og venja er við afhendingu skipa. 

mbl.is