Búrhvalshræið dregið út á sjó

Landhelgisgæslan | 30. mars 2022

Búrhvalshræið dregið út á sjó

Búrhvalshræ sem rak á land við Bessastaði í Hrútafirði 18. mars var loksins dregin á haf út síðastliðna helgi með aðstoð Landhelgisgæslunnar.

Búrhvalshræið dregið út á sjó

Landhelgisgæslan | 30. mars 2022

Landhelgisgæslan fjarlægði um helgina 15 metra búrhval sem hafði strandað …
Landhelgisgæslan fjarlægði um helgina 15 metra búrhval sem hafði strandað við Bessastaði í Hrútafirði. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Búrhvalshræ sem rak á land við Bessastaði í Hrútafirði 18. mars var loksins dregin á haf út síðastliðna helgi með aðstoð Landhelgisgæslunnar.

Búrhvalshræ sem rak á land við Bessastaði í Hrútafirði 18. mars var loksins dregin á haf út síðastliðna helgi með aðstoð Landhelgisgæslunnar.

Fram kemur í færslu á vef Landhelgisgæslunnar að varðskipið Freyja hafi verið send á vettvang. Sendir voru tveir léttbátar frá skipinu til að kanna aðstæður umhverfis hið 15 metra búrhvalshræ.

„Hvalurinn var nánast á þurru og á meðan beðið var flóðs voru taugar settar í sporð dýrsins. Nýta varð léttbáta skipsins til að toga dýrið út þar sem ekki reyndist unnt að koma Freyju nálægt landi sökum grynninga. Síðdegis á laugardag losnaði dýrið úr fjörunni og var það dregið að varðskipinu Freyju og tengt dráttartaug,“ segir í færslunni.

Hræið var dregið um 30 sjómílur norður af Horni þar sem búrhvalnum var sleppt utan við sjávarfallastrauma.

Landhelgisgæslan hefur birt myndir af aðgerðum sínum.

Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Freyja dróg hræið 30 sjómílur út á haf.
Freyja dróg hræið 30 sjómílur út á haf. Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Búrhvalnum var síðan sleppt.
Búrhvalnum var síðan sleppt. Ljósmynd/Landhelgisgæslan



mbl.is