Sjávarhæðin vaxandi áhyggjuefni

Loftslagsvá | 5. september 2022

Sjávarhæðin vaxandi áhyggjuefni

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir hækkun sjávarborðs vaxandi áhyggjuefni og að grípa þurfi til aðgerða til að verja strandlengjuna í stórum stíl til að bregðast við. Umtalsverð áskorun blasi við.

Sjávarhæðin vaxandi áhyggjuefni

Loftslagsvá | 5. september 2022

„Það getur þýtt að við þurfum að verja stærri kafla …
„Það getur þýtt að við þurfum að verja stærri kafla af strandlengjunni. Það verður umtalsverð áskorun,“ segir innviðaráðherra. mbl.is/Jónas Erlendsson

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir hækkun sjávarborðs vaxandi áhyggjuefni og að grípa þurfi til aðgerða til að verja strandlengjuna í stórum stíl til að bregðast við. Umtalsverð áskorun blasi við.

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir hækkun sjávarborðs vaxandi áhyggjuefni og að grípa þurfi til aðgerða til að verja strandlengjuna í stórum stíl til að bregðast við. Umtalsverð áskorun blasi við.

Ráðstefna um áhrif lofts­lags­breyt­inga á sveit­ar­fé­lög­in í land­inu og aðlög­un­araðgerðir, var haldin á Grand Hótel fyrr í dag. Til máls tóku ýmsir sérfræðingar og ráðherrar, ásamt fulltrúum sveitarfélaga. Margar áskoranir voru  ræddar, meðal annars hækkun sjávarborðs.

Búið að vera þolanlegt

„Það er búið að vera þolanlegt ástand hvað það varðar. Við höfum varið einstaka hluta, einstaka svæði en þetta er vaxandi áhyggjuefni,“ segir Sigurður Ingi, í samtali við mbl.is að ráðstefnu lokinni.

Að sögn Sigurðar þurfa Íslendingar að fara að verja strandlengjuna í stórum stíl til að bregðast við hækkun sjávar og öfgum í veðri sem valdi aukinni ölduhæð.

„Það getur þýtt að við þurfum að verja stærri kafla af strandlengjunni. Það verður umtalsverð áskorun. Þess vegna væri ágætt að koma í veg fyrir að sjórinn hækkaði mikið.“

mbl.is