Ræða saman um langþráð vopnahlé

Jemen | 9. apríl 2023

Ræða saman um langþráð vopnahlé

Samningamenn frá Óman komu til Jemen í gær til að ræða vopnahlé á milli uppreisnarmanna úr röðum húta, sem eru studdir af Íran, og Sádi-Arabíu.

Ræða saman um langþráð vopnahlé

Jemen | 9. apríl 2023

Maður á mótorhjóli ekur framhjá sendiráði Sádi-Arabíu í höfuðborg Jemen, …
Maður á mótorhjóli ekur framhjá sendiráði Sádi-Arabíu í höfuðborg Jemen, Sanaa. AFP/Mohammed Huwais

Samningamenn frá Óman komu til Jemen í gær til að ræða vopnahlé á milli uppreisnarmanna úr röðum húta, sem eru studdir af Íran, og Sádi-Arabíu.

Samningamenn frá Óman komu til Jemen í gær til að ræða vopnahlé á milli uppreisnarmanna úr röðum húta, sem eru studdir af Íran, og Sádi-Arabíu.

Aukinn kraftur hefur verið lagður í að leysa deiluna eftir að helsti erlendi stuðningsmaður ríkisstjórnar Jemens, Sádi-Arabía, undirritaði samning í síðasta mánuði um að lagfæra samskiptin við Íran.

Háttsettir erindrekar frá Sádi-Arabíu og Íran hittust í Peking, höfuðborg Kína, á fimmtudag. Þar hétu þeir því að standa saman í því að tryggja „öryggi og stöðugleika“ í Jemen.

Fjölmargir látist

Á þeim tæpa áratug síðan stríðið í Jemen hófst hafa hundruð þúsunda látist, bæði með beinum og óbeinum hætti. Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst ástandinu sem verstu mannúðarkrísu heimsins.

Hútar náðu höfuðborginni Sanaa á sitt vald árið 2014 sem leiddi af sér deilu við stjórnvöld í landinu, sem undanfarin átta ár hafa notið stuðnings hernaðarbandalags sem er leitt af Sádi-Arabíu.

mbl.is