Hefja árás gegn Hútum

Jemen | 11. janúar 2024

Hefja árás gegn Hútum

Árás Breta og Bandaríkjamanna gegn skæruliðadeild Húta í Jemen er hafin. Er árásin gerð í þeim tilgangi að vernda alþjóðlegar siglingaleiðir á Rauðahafi. Bresk flugvél og skip konunglega sjóhersins munu taka þátt í aðgerðunum.

Hefja árás gegn Hútum

Jemen | 11. janúar 2024

Hútar eru hliðhollir Hamas.
Hútar eru hliðhollir Hamas. AFP

Árás Breta og Bandaríkjamanna gegn skæruliðadeild Húta í Jemen er hafin. Er árásin gerð í þeim tilgangi að vernda alþjóðlegar siglingaleiðir á Rauðahafi. Bresk flugvél og skip konunglega sjóhersins munu taka þátt í aðgerðunum.

Árás Breta og Bandaríkjamanna gegn skæruliðadeild Húta í Jemen er hafin. Er árásin gerð í þeim tilgangi að vernda alþjóðlegar siglingaleiðir á Rauðahafi. Bresk flugvél og skip konunglega sjóhersins munu taka þátt í aðgerðunum.

Telegraph greinir frá.

Þessi ákvörðun Breta og Bandaríkjamanna kemur í kjölfar árásar Húta á flutningaskip á þriðjudag sem var sú stærsta frá því þeir hófu árásir sínar á alþjóðlegar siglingaleiðir á Rauðahafi.

Þá skaut Banda­ríkja­her ásamt Bret­um niður átján árásardróna, tvær stýrif­laug­ar og eina eld­flaug.

Styðja Hamas

Hútar hafa gert 26 árásir á Rauðahafi og hafa þær beinst að flutningaskipum sem þeir segja að hafi tengsl við Ísrael eða séu skip í eigu vinaþjóða Ísraels. Hútar gera þessar árásir til stuðnings við hryðjuverkasamtökin Hamas og eru Hútar studdir af klerkastjórninni í Íran.

Rauðahafið er ein mik­il­væg­asta sjó­leiðin á milli Asíu og Evr­ópu fyr­ir olíu- og eldsneyt­is­flutn­inga, sem og neyslu­vör­ur.

Í desember var sett á fót sameiginleg varn­araðgerð fleiri en 20 ríkja und­ir for­ystu Banda­ríkj­anna sem hafa samið um að reyna verja skip á þessu svæði frá árás­um Húta.

Nefn­ist sú aðgerð „Operation Prosperity Guardian“ (OPG), laus­lega þýtt á ís­lensku sem „Vel­meg­un­ar­varðaraðgerðin“.

mbl.is