Verður 67 ára í sumar og er í fantaformi

Heilsurækt | 11. apríl 2023

Verður 67 ára í sumar og er í fantaformi

Tónlistamaðurinn Bubbi Morthens verður 67 ára í sumar og er í fantaformi. Hann stundar líkamsrækt af kappi og deildi nýverið speglamynd af sér berum að ofan í ræktinni á Instagram sem er að gera allt vitlaust. 

Verður 67 ára í sumar og er í fantaformi

Heilsurækt | 11. apríl 2023

Bubbi Morthens verður 67 ára í sumar, en hann er …
Bubbi Morthens verður 67 ára í sumar, en hann er í hörku formi og hugsar vel um heilsuna. mbl.is/Kristinn Magnússon

Tónlistamaðurinn Bubbi Morthens verður 67 ára í sumar og er í fantaformi. Hann stundar líkamsrækt af kappi og deildi nýverið speglamynd af sér berum að ofan í ræktinni á Instagram sem er að gera allt vitlaust. 

Tónlistamaðurinn Bubbi Morthens verður 67 ára í sumar og er í fantaformi. Hann stundar líkamsrækt af kappi og deildi nýverið speglamynd af sér berum að ofan í ræktinni á Instagram sem er að gera allt vitlaust. 

Bubbi segist æfa 5-6 sinnum í viku, en það geri hann til að halda heilsu og vera fær um að geta haldið sér gangandi sem lengst. „Mig langar að líta sæmilega út á sviði, halda röddinni í formi, þurfa ekki að lækka nein lög í tóntegund svo dæmi sé tekið,“ skrifaði hann. 

„Að mæta einn dag í einu er leiðin til árangurs, lífið er alltaf núna en ekki seinna,“ skrifaði Bubbi að lokum. Af ummælum við færsluna að dæma er Bubbi mikil hvatning fyrir aðra sem vilja ná tökum á heilsunni enda er heilsan grunnurinn að góðu lífi.

Tók heilsuna föstum tökum

Í október síðastliðnum sagðist Bubbi vera búinn að vera í stífu átaki í tæplega ár. Hann sagðist hafa verið orðinn „of þungur“ og fundið fyrir því nánast daglega. 

Í þeirri færslu sagðist hann hafa minnkað þyngdir í lyftingum og lagt meiri áherslu á að bæta úthald og brennslu. Þar segist hann einnig taka einn dag í einu og því ljóst að það hafi virkað vel fyrir Bubba og er eflaust eitthvað sem fleiri mættu tileinka sér. 

mbl.is