Í sturluðu formi án venjulegra ræktartækja

Heilsurækt | 1. maí 2023

Hollywood-leikarinn Jason Momoa er þekktur fyrir að vera í svakalegu formi. Leikarinn úr Aquaman mætir ekki bara á hlaupabrettið og tekur svo hringinn í lyftingarsalnum eins og venjulegt fólk. Hann fer öðruvísi og áhugaverðari leiðir til þess að hreyfa sig. 

Jason Momoa sem Aquaman

Bekkpressur og réttstöðulyftur eru ekki fyrir leikarann Momoa eins og fram kemur á vef Men's Health þar sem hann er í löngu viðtali. 

Ketilbjöllur

Flestir sem hafa stigið inn í líkamsræktarstöð á síðustu tíu árum kannast við ketilbjöllur. Momoa sveiflar þeim grimmt til að halda sér í formi og styrkja magavöðva og handleggi. 

Boxpúði

Leikarinn boxar og til þess að gera æfinguna erfiðari setur hann teygju utan púðann og mitti sitt. 

Bjarnarganga

Momoa er maður náttúrunnar og til að styrkja miðjuna skríður hann um eins og björn. Hann fer bæði fram og aftur á fjórum fótum en passar að hnén snerti ekki gólfið. 

Klifur

Momoa elskar að klifra og góð klifuræfing fær hjartað til að slá aðeins hraðar og reynir auðvitað á allan líkamann. 

Jason Momoa ásamt íslensku leikkonunni Heru Hilmarsdóttur.
Jason Momoa ásamt íslensku leikkonunni Heru Hilmarsdóttur. AFP/ Jon Kopaloff
mbl.is