5 mistök farþega sem pirra flugfreyjur mest

Mistök ferðamanna | 19. maí 2023

5 mistök farþega sem pirra flugfreyjur mest

Það hljómar kannski frekar einfalt að fljúga – þú þarft bara að fara um borð í flugvélina, setjast niður og fara svo úr flugvélinni þegar hún hefur lent á áfangastað. Hins vegar eru ýmsar reglur sem ber að fylgja um borð flugvéla sem margir farþegar kjósa að hunsa. 

5 mistök farþega sem pirra flugfreyjur mest

Mistök ferðamanna | 19. maí 2023

Ljósmynd/Colourbox

Það hljómar kannski frekar einfalt að fljúga – þú þarft bara að fara um borð í flugvélina, setjast niður og fara svo úr flugvélinni þegar hún hefur lent á áfangastað. Hins vegar eru ýmsar reglur sem ber að fylgja um borð flugvéla sem margir farþegar kjósa að hunsa. 

Það hljómar kannski frekar einfalt að fljúga – þú þarft bara að fara um borð í flugvélina, setjast niður og fara svo úr flugvélinni þegar hún hefur lent á áfangastað. Hins vegar eru ýmsar reglur sem ber að fylgja um borð flugvéla sem margir farþegar kjósa að hunsa. 

Nýverið deildi fyrrverandi flugfreyja fimm verstu mistökunum sem farþegar gera í háloftunum með lesendum Travel + Leisure

 1. Nota salernið í flugtaki og lendingu

Að sögn flugfreyjunnar pirrar það margar flugfreyjur þegar farþegar fara á salernið í flugtaki og lendingu, eða um leið og þeir koma um borð í flugvélina. Hún mælir með því að fólk geymi salernisferðir þar til flugvélin er komin í loft og slökkt hefur verið á sætisbeltaljósunum.

2. Fjarlægja töskur úr farangurshólfi áður en flugvélin er komin að hliðinu

Við höfum öll orðið vitni af farþegum sem stökkva upp og ná í farangur sinn um leið og flugvélin lendir. Að sögn flugfreyjunnar getur það verið mjög hættulegt og því mikilvægt að farþegar bíði þar til vélin hefur stöðvast alveg áður en þeir standa upp til að ná í eigur sínar. 

3. Að vera dónaleg/ur við flugáhöfnina

Í háloftunum eru flugfreyjur og þjónar reiðubúnir að aðstoða farþega, en sumir farþegar virðast gleyma því og verða dónalegir. Flugfreyjan vill minna farþega á að flugáhöfnin leggur mikið á sig til að tryggja öryggi farþega og því mikilvægt að þeim sé sýnd virðing.

4. Að nota ekki öryggisbelti þegar á við

Ef kveikt er á sætisbeltaljósunum er mikilvægt að fylgja leiðbeiningum vel, en ljósin tryggja öryggi farþega í óvæntri ókyrrð. Þeir sem fylgja ekki leiðbeiningum geta stofnað bæði sjálfum sér og öðrum í mikla hættu.  

5. Að reyna að komast framhjá matarvögnum

Ein verstu mistök sem farþegar gera er þegar þeir standa upp og búast við því að komast framhjá matarvögnunum á meðan á þjónustu stendur. Vagnarnir eru þungir, gangurinn þröngur og því óþægilegt fyrir áhöfnina þegar einhver stendur og bíður eftir að komast framhjá.

mbl.is