Íris og Egill eiga von á barni

Meðganga | 2. janúar 2024

Íris og Egill eiga von á barni

Fyrirsætan Íris Freyja Salgu­ero Krist­ín­ar­dótt­ir og athafnamaðurinn Egill Halldórsson eiga von á sínu fyrsta barni saman.

Íris og Egill eiga von á barni

Meðganga | 2. janúar 2024

Íris Freyja Salgu­ero Krist­ín­ar­dótt­ir og Egill Halldórsson eiga von á …
Íris Freyja Salgu­ero Krist­ín­ar­dótt­ir og Egill Halldórsson eiga von á sínu fyrsta barni saman. Skjáskot/Instagram

Fyrirsætan Íris Freyja Salgu­ero Krist­ín­ar­dótt­ir og athafnamaðurinn Egill Halldórsson eiga von á sínu fyrsta barni saman.

Fyrirsætan Íris Freyja Salgu­ero Krist­ín­ar­dótt­ir og athafnamaðurinn Egill Halldórsson eiga von á sínu fyrsta barni saman.

Parið greindi frá þessu í sameiginlegri færslu á Instagram. „Svo þakklát að vera fara inn í nýtt ár með ástinni minni. Bætist við eitt kríli í litlu fjölskylduna okkar. Svenni að verða stóri bróðir,“ skrifuðu þau við fallega myndaröð af sér með sónarmynd. 

Íris og Egill kynntust sumarið 2022 og hafa síðan þá verið dugleg að ferðast bæði innanlands og erlendis. Þau hafa bæði mikla ástríðu fyrir ferðalögum og eru dugleg að deila ævintýralegum myndum frá ferðum sínum á samfélagsmiðlum. 

Fjölskylduvefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is