Mjög lítið mælst af loðnu

Loðnuveiðar | 13. febrúar 2024

Mjög lítið mælst af loðnu

Mjög lítið hefur mælst af loðnu í febrúarmælingu Hafrannsóknastofnunar. Mælingunni er ekki lokið en önnur yfirferð á árinu er langt komin með þátttöku þriggja uppsjávarveiðiskipa.

Mjög lítið mælst af loðnu

Loðnuveiðar | 13. febrúar 2024

Áætlað er að yfirferðinni ljúki á miðvikudaginn.
Áætlað er að yfirferðinni ljúki á miðvikudaginn. Kort/Hafrannsóknarstofnun

Mjög lítið hefur mælst af loðnu í febrúarmælingu Hafrannsóknastofnunar. Mælingunni er ekki lokið en önnur yfirferð á árinu er langt komin með þátttöku þriggja uppsjávarveiðiskipa.

Mjög lítið hefur mælst af loðnu í febrúarmælingu Hafrannsóknastofnunar. Mælingunni er ekki lokið en önnur yfirferð á árinu er langt komin með þátttöku þriggja uppsjávarveiðiskipa.

Enn á eftir að fara yfir Vestfjarðamið en skipin Heimaey og Polar Ammassak þurftu að hverfa þaðan um helgina vegna veðurs.

Er áætlað að yfirferðinni ljúki á miðvikudaginn.

„Gert er ráð fyrir frekari vöktun og yfirferð að þessum mælingum loknum en fyrirkomulag þeirra skýrist seinna í vikunni. Svæðin sem þá verður líklegast lögð áhersla á eru norðvestur af landinu og undan Vestfjörðum ásamt Suðausturmiðum,“ segir í tilkynningu stofnunarinnar.

mbl.is