Heimaey bættist í hóp leitarskipa

Loðnuveiðar | 23. febrúar 2024

Heimaey bættist í hóp leitarskipa

Heimaey VE lagði frá bryggju í morgun og mun skipið vera við leit og mælingu á loðnu norðvestan við land næstu daga. Eru þá skipin sem nú leita loðnu orðin þrjú, en tvö skip héldu til veiða í gær.

Heimaey bættist í hóp leitarskipa

Loðnuveiðar | 23. febrúar 2024

Heimaey VE mun leita loðnu norðvestur af landinu, en veðurskilyrði …
Heimaey VE mun leita loðnu norðvestur af landinu, en veðurskilyrði eru ekki góð. mbl.is/Börkur Kjartansson

Heimaey VE lagði frá bryggju í morgun og mun skipið vera við leit og mælingu á loðnu norðvestan við land næstu daga. Eru þá skipin sem nú leita loðnu orðin þrjú, en tvö skip héldu til veiða í gær.

Heimaey VE lagði frá bryggju í morgun og mun skipið vera við leit og mælingu á loðnu norðvestan við land næstu daga. Eru þá skipin sem nú leita loðnu orðin þrjú, en tvö skip héldu til veiða í gær.

Ekki er vitað hve langan tíma Heimaey mun þurfa til að ljúka mælingum þar sem veðurspáin er óhagstæð, að sögn Guðmundar J. Óskarssonar sviðsstjóra uppsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar.

Ásgrímur Halldórsson SF og grænlenska skipið Polar Ammassak héldu í leit að loðnu suðaustur af landinu í gær og hófts þannig fjórða tilraun til að finna loðnu frá haustmælingu á síðasta ári.

Guðmundur áætlar að eiðangur Ásgríms Halldórssonar og Polar Ammassak muni taka um tvo til þrjá daga.

mbl.is