Hagfræðingurinn Magnús Árni Skúlason hefur fest kaup á íbúð við Sóleyjargötu í Reykjavík. Sóleyjargatan er eftirsóttur staður til þess að búa á en stutt er niður á tjörn og út á allar helstu stofnbrautir. Auk þess er Sóleyjargatan hjarta þingholtanna.

Um er að ræða 129 fm miðhæð í glæsilegu húsi sem reist var 1931. Magnús hefur búið í húsinu um langa hríð en hann á aðra íbúð í sama húsi sem hann festi kaup á 2005.
Húsið stendur á góðum stað og hefur allt verið tekið í gegn en það var steinað að utan á árunum 2017-2018. Íbúðin sem Magnús Árni festi kaup á var auglýst til sölu í ágúst 2022 en ekki var gengið frá kaupunum fyrr en 14. mars á þessu ári.
Garðurinn í kringum húsið er eins og útibú frá Hljómskálagarðinum, gróinn og státar af fallegum trjám og plöntum.
Magnús keypti íbúðina af Þórdísi Unndórsdóttur og greiddi fyrir hana 125.000.000 kr.
Smartland óskar Magnúsi Árna til hamingju með nýju íbúðina!