Virknin enn ekki sótt í sig veðrið

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 27. apríl 2024

Virknin enn ekki sótt í sig veðrið

Virknin í gígnum í eldgosinu við Sundhnúkagígaröðina er stöðug og hefur enn ekki aukist til muna þrátt fyrir hraða kvikusöfnun undir eldgosinu.

Virknin enn ekki sótt í sig veðrið

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 27. apríl 2024

Eldgosið nú hefur staðið lengst allra eldgosanna á Sundhnúkagígaröðinni í …
Eldgosið nú hefur staðið lengst allra eldgosanna á Sundhnúkagígaröðinni í þessari hrinu eldgosa og næstlengst þeirra gosa sem hafa orðið á Reykjanesskaga síðan 2021. mbl.is/Hörður Kristleifsson

Virknin í gígnum í eldgosinu við Sundhnúkagígaröðina er stöðug og hefur enn ekki aukist til muna þrátt fyrir hraða kvikusöfnun undir eldgosinu.

Virknin í gígnum í eldgosinu við Sundhnúkagígaröðina er stöðug og hefur enn ekki aukist til muna þrátt fyrir hraða kvikusöfnun undir eldgosinu.

„Þetta hefur verið mjög svipað síðustu daga,“ segir Sigríður Kristjánsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is, spurð út í stöðuna á eldgosinu.

Eins og fram hefur komið í fréttaflutningi mbl.is rís land enn undir Svartsengi þrátt fyrir að gos standi yfir. Þetta telst afar óvenjulegt og ef kvikusöfnun heldur áfram á svipuðum hraða eru meiri líkur á því að kraftur eldgossins á Sundhnúkagígaröðinni aukist verulega, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni.

Gosóróinn svipaður

En eins og staðan er núna bendir ekkert til þess að virknin sé að færast í aukana, að sögn Sigríðar: „Nei, það eru engin merki sem við erum að sjá núna.“

Hún segir að gosórói á svæðinu sé stöðugur og svipaður því sem hefur verið síðustu daga.

Auk þess hafa ekki nema 15 skjálftar mælst í kvikuganginum undir Svartsengi frá miðnætti, sem telst afar lítið.

mbl.is