Birna vill mexíkóska ídýfu og nammiskál í Eurovision-partíið

Eurovision | 7. maí 2024

Birna vill mexíkóska ídýfu og nammiskál í Eurovision-partíið

Í kvöld kemur í ljós hvort íslenska lagið, Scared of Heights, kemst áfram Eurovision sem haldin er að þessu sinni í Malmö í Svíþjóð. En Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona kepp­ir í kvöld í fyrri umferð forkeppninnar fyr­ir hönd Íslands. Hún og teymið hennar staðið í ströngu síðustu daga og vikur fyrir stóru stundina.

Birna vill mexíkóska ídýfu og nammiskál í Eurovision-partíið

Eurovision | 7. maí 2024

Birna Björnsdóttir og Emilía Tómasdóttir eru í Eurovision-teyminu út í …
Birna Björnsdóttir og Emilía Tómasdóttir eru í Eurovision-teyminu út í Malmö í Svíþjóð. Birna er vön að halda partí þegar keppnin er á skjánum og býður þá upp veislurétti en nú verður hún úti og lætur sig dreyma kræsingar. Samsett mynd

Í kvöld kemur í ljós hvort íslenska lagið, Scared of Heights, kemst áfram Eurovision sem haldin er að þessu sinni í Malmö í Svíþjóð. En Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona kepp­ir í kvöld í fyrri umferð forkeppninnar fyr­ir hönd Íslands. Hún og teymið hennar staðið í ströngu síðustu daga og vikur fyrir stóru stundina.

Í kvöld kemur í ljós hvort íslenska lagið, Scared of Heights, kemst áfram Eurovision sem haldin er að þessu sinni í Malmö í Svíþjóð. En Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona kepp­ir í kvöld í fyrri umferð forkeppninnar fyr­ir hönd Íslands. Hún og teymið hennar staðið í ströngu síðustu daga og vikur fyrir stóru stundina.

Meðal þeirra sem hafa staðið í ströngu er Birna Björnsdóttir eigandi Dansskóla Birnu Björns en hún sér meðal annars um allar sviðshreyfingarnar þegar flutningur lagsins fer fram á stóra sviðinu. Birna er mikill aðdáandi Eurovision og hefur fylgst með keppninni frá upphafi. Hún er vön að halda Eurovision-partí heima þegar keppnin fram og bjóða upp á veislukræsingar.

Kókosbollur, lakkrís og jarðarber í nammiskálina

„Það er ávallt heilög stund hjá minni fjölskyldu þegar Eurovision-keppnin er á skjánum. Stundum koma vinir yfir til okkar og partíið breytist i hlaðborð þar sem allir koma með eitthvað gott á borðið. „Við fjölskyldan grillum til að mynda oft pylsur og hamborgara, sem er einfalt og þægilegt og enginn missir af flutningi keppenda,“ segir Birna og bætir við að það sé gott að vera með allt tilbúið þegar keppni hefst.

„Síðan er ómissandi að vera með alvöru nammiskál fyrir framan skjáinn. Í nammiskálinni minni eru kókosbollur, lakkrís og jarðarber. Ég elska kókosbollur og lakkrís, svo gott saman. Þá er auðveldara að horfa á stigatöfluna,“ segir Birna.

Kókosbollur, lakkrís og jarðarber fara í nammiskálina hennar Birnu.
Kókosbollur, lakkrís og jarðarber fara í nammiskálina hennar Birnu. Samsett mynd

Snæðum í mötuneytinu

Nú staðan önnur hjá Birnu þar sem hún er í teyminu hennar Heru og mun því verja öllum deginum í tónleikahöllinni í Malmö. „Þar sem við verðum öll hér í allan dag og í kvöld munum við snæða í mötuneytinu. Við fáum því ekki að ráða för hvað verður í matinn. En ég myndi klára laga mexíkóska ídýfu fyrir keppnina í kvöld ef ég væri heima í eldhúsinu,“ segir Birna og hlær. Hún deilir hér með lesendum uppskrift að mexíkósku ídýfunni sem hún elskar og kemur af uppskriftavefnum Eldhússögur.

Gómsæt mexíkó ídýfa sem tryllir bragðlaukana.
Gómsæt mexíkó ídýfa sem tryllir bragðlaukana. Ljósmynd/Dröfn Vilhjálmsdóttir

Mexíkósk ídýfa

Passar í meðalstórt eldfast mót

  • 200 g rjómaostur
  • 1-2 dósir  maukaðar pintóbaunir (refried beans) frá t.d. Old el paso eða Santa Maria
  • 1 krukka jalapeno (100 g án vökva), minna fyrir mildari ídýfu, saxað smátt
  • 1 dós 18% sýrður rjómi
  • ½  bréf af taco-kryddblöndu
  • 1 meðalstór rauðlaukur, skorinn smátt
  • 300 g rifinn ostur
  • 2 krukkur (fer eftir stærð mótsins) taco-sósa
  • 200 g (án vökva) svartar olífur , skornar í sneiðar
  • 30 g ferskt kóríander, blöðin söxuð

Aðferð:

  1. Byrjið á því að smyrja rjómaostinn á botninn í eldfasta mótið.
  2. Dreifið síðan niðursoðnu baununum jafnt yfir rjómaostinn.
  3. Saxið jalapeno smátt og dreifið yfir baunirnar.
  4. Blandið saman sýrðum rjóma saman við hálft bréf af taco-kryddi og dreifið blöndunni svo yfir jalapenos.
  5. Dreifið síðan smátt söxuðum rauðlauk yfir sýrða rjómablönduna.
  6. Stráið rifna ostinum yfir rauðlaukinn.
  7. Loks þekið þið ostinn með taco-sósu.
  8. Dreifið síðan söxuðu svörtu ólífunum yfir taco-sósuna og endið síðan á að strá söxuðu kóríander blöðunum yfir ólífurnar.
  9. Berið mexíkósku ídýfuna fram með nachos, tostitos skálum eða því sem hugur ykkar girnist.
Skemmtilegar þessar litlu skálar.
Skemmtilegar þessar litlu skálar. Ljósmynd/Dröfn Vilhjálmsdóttir
mbl.is