Menn sem handteknir voru á Heathrow látnir lausir

Þrír menn, sem handteknir voru á Heathrow flugvelli á Englandi í dag með tilvísan til laga um varnir gegn hryðjuverkum hafa verið látnir lausir, að sögn lögreglu. Mennirnir, sem allir eru Bretar, voru handteknir snemma í morgun en lögregla hefur ekki upplýst hvort handtökurnar tengjast leitinni að hryðjuverkamönnum sem sprengdu fjórar sprengjur í Lundúnum á fimmtudagsmorgun með þeim afleiðingum að 49 manns að minnsta kosti létu lífið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert