Héldu að Jaycee væri systir þeirra

Nancy Garrid
Nancy Garrid Reuters

Dætur Jaycee Lee Dugard sem eru ellefu og fimmtán ára héldu að Jaycee væri systir þeirra en ekki mamma. Þær stóðu í þeirri trú að hin 54 ára gamla Nancy Garrido væri mamma þeirra.

Það er fyrst nú að sannleikurinn kemur í ljós fyrir stúlkurnar, segir stjúpfaðir Jaycee Dugard, Carl Probyn. Þá eru þær einnig að frétta fyrst núna að faðir þeirra sé dæmdur kynferðisbrotamaður sem rændi móður þeirra, nauðgaði og hélt fanginni í 18 ár.

Faðirinn, hinn 58 ára gamli Philip Garrido, stendur fast við að hann hafi aldrei gert stúlkunum neitt en hefur bæði viðurkennt og neitað að hafa rænt Jaycee Dugard þegar hún var ellefu ára.

Lögreglan hefur til þessa ekki sagt mikið um eiginkonu Garridos, Nancy Garrido, og hver þáttur hennar í málinu er. Það er þó skoðun yfirvalda að hún hafi tekið þátt í ráninu árið 1991.

Philip kynntist Nancy meðan þau sátu bæði í fangelsi.

Dæturnar tvær, Jaycee og móðir hennar eru nú saman og vinna að því að kynnast hver annarri. Í fyrstu voru þær á hóteli en nú hefur Alríkislögreglan flutt þær á leynilegan stað.

Lögreglan heldur áfram að rannsaka staðinn þar sem Jaycee var í haldi.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert