„Stöðvið farsann“

Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, biðlaði til fulltrúadeildarinnar á Bandaríkjaþingi að „stöðva farsann“ og binda enda á lokun ríkisstofnana með því að samþykkja fjárlög ríkisins fyrir næsta ár.

Greiðið þessu atkvæði, stöðvið farsann. Bindið enda á þessar lokanir strax,“ sagði Obama í vikulegu útvarps- og sjóvarpsávarpi sínu í morgun.

Nánast öllum ríkisstofnunum var lokað fyrr í vikunni í Bandaríkjunum eftir að þinginu tókst ekki að koma sér saman um afgreiðslu fjárlaga.

Obama segir að öldungadeildin hafi þegar samþykkt fjárlögin og það séu nægjanlega margir repúblikanar og demókratar í fulltrúadeildinni sem séu á sama máli og vilji binda endi á lokanirnar strax. En íhaldssamasti armur Repúblikanaflokksins komi í veg fyrir að atkvæðagreiðslan fari fram.

Hann segir að ekki komi til greina að greiða lausnargjald svo hægt sé að opna ríkisstofnanir á ný og vísar þar til ákvörðunar repúblikana í fulltrúadeildinni að tengja fjárlögin við sjúkratryggingalögin. „Og ég mun svo sannarlega ekki greiða lausnargjald í ski8ptum fyrir hækkun á skuldaþakinu,“ segir Obama. Bandaríska ríkið mun ná skuldaþakinu þann 17. október og ef þingið samþykkir ekki að hækka skuldaþakið mun ríkissjóður lenda í vandræðum með að greiða af skuldum sínum.

Forseti og varaforseti Bandaríkjanna, Barack Obama og Joe Biden
Forseti og varaforseti Bandaríkjanna, Barack Obama og Joe Biden AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert