Ekkert heilagt í fjárlagafrumvarpinu

AFP

Fjármálaráðherra Svíþjóðar, Per Bolund, segir að ekkert sé heilagt í fjárlagafrumvarpinu og að ríkisstjórn landsins sé reiðubúin til þess að ræða hvern lið þess með tilliti til mögulegra breytinga. Bolund sagði þetta er SvD Näringsliv náði tali af honum í morgun.

Umræður um fjárlög næsta árs hófust í sænska þinginu klukkan 9 í morgun að sænskum tíma en þar reynir forsætisráðherrann, Stefan Löfvens, að verja ríkisstjórn sína en mikil hætta er á að hún falli í dag þar sem ekki er þingmeirihluti fyrir fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar.

Sænska ríkisútvarpið hefur eftir Tomas Eneroth, formanni þingflokks Jafnarmannaflokksins, að ákvörðun um framhaldið verði tekin samhliða umræðunni í dag, hvort frumvarpinu verði vísað í fjárlaganefnd eður ei. Enn hafi ekkert komið fram á þinginu í dag sem bendi til þess að borgaraflokkarnir ætli að breyta stefnu sinni.
Hér er hægt að fylgjast beint með umræðunni
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert