Sendu ekki frá sér neyðarkall

Frá slysstað. Enginn lifði af þegar þyrlan hrapaði.
Frá slysstað. Enginn lifði af þegar þyrlan hrapaði. AFP

Ekkert neyðarkall barst frá þyrlunni sem hrapaði við Turey í Hörðalandi í Noregi á föstudaginn. Þá bárust ekki skilaboð sem bentu til þess að eitthvað virkaði ekki sem skildi.

Flugmenn þyrlunnar sendu reglubundin skilaboð til flugumferðarstjóra í flugturninum þegar þeir nálguðust land. Sögðust þeir vera að undirbúa lendingu en aðeins fáum mínútum síðar brotlenti þyrlan. Enginn lifði slysið af.

Engin skilaboð bárust frá flugmönnunum síðustu sekúndurnar áður en þyrlan brotlenti. Ekki er vitað hvort þyrlan sendi frá sér sjálfvirkt neyðarkall.

Í gær bárust fregnir af því að tekist hefði að ná gögnum úr flugrita þyrlunnar. Enn er unnið að því að bera kennsl á þrettán einstaklinga sem létust í slysinu. Þyrlan var á vegum Statoil, norska ríkisolíufélagsins og samkvæmt sjónarvottum losnuðu spaðar hennar af henni áður en  hún hrapaði til jarðar.

Flug­véla- og þyrlu­fram­leiðand­inn Air­bus sem fram­leiðir þyrlu­teg­und­ina, H225 Super Puma, seg­ir það aldrei áður hafa gerst að spaði hafi losnað af þaki þyrlu þess­ar­ar gerðar. „Við erum í áfalli“, seg­ir talsmaður Air­bus í sam­tali við norska dag­blaðið Ber­gens Tidende. „Það verður for­gangs­mál hjá okk­ur að finna ástæðuna fyr­ir slys­inu.“

Í gær bárust fregnir af því að tekist hefði að …
Í gær bárust fregnir af því að tekist hefði að ná gögnum úr flugrita þyrlunnar. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert