Skynjuðu reyk í vélinni

Ættingjar farþeganna við bænastund.
Ættingjar farþeganna við bænastund. AFP

Egypsk yfirvöld rannsaka nú orðróm um að það hafi verið reykur um borð farþegaþotu EgyptAir rétt áður en hún hrapaði í Miðjarðarhafið aðfaranótt fimmtudags. „Við erum að skoða málið,“ sagði flugmálaráðherra Egyptalands í samtali við AFP. „Ég get hvorki staðfest eða neitað því að þetta sé rétt.“

The Wall Street Journal hélt því fram í kvöld að sjálfvirkt viðvörunarkerfi um borð hefði gefið til kynna að reykur hafi verið í nefi flugvélarinnar og að eitthvað hafi verið af stjórnunarkerfi hennar rétt áður en hún hrapaði.

Er því haldið fram að viðvörunin hafi verið sent sjálfkrafa úr tölvukerfi farþegaþotunnar um klukkan 2:26 að staðartíma, rétt áður en samband við vélina rofnaði.

Skilaboðin gáfu til kynna að reykur hefði verið í framhluta vélarinnar, sérstaklega í salerni og vélarrými fyrir neðan flugstjórnarklefann.

CNN heldur því einnig fram að reykur hafi verið í vélinni áður en hún hrapaði og vitnaði í egypskar heimildir.

Flugmálaráðherra Egyptalands sagði á fimmtudaginn að það væri líklegra að hryðjuverkamenn hefðu grandað vélinni en tæknibilun. Brak úr vélinni ásamt sætum og farangri fundust í dag í um 290 km fjarlægð frá egypsku borginni Alexandríu.

Franski flugherinn hefur m.a. tekið þátt í leitinni að vélinni.
Franski flugherinn hefur m.a. tekið þátt í leitinni að vélinni. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert