„Þú ert mesta skræfa sem ég hef séð“

Hinna látnu er minnst við kirkjuna í Charlestown.
Hinna látnu er minnst við kirkjuna í Charlestown. AFP

Áður en alríkisdómarinn Rich­ard Gerg­el tilkynnti fjöldamorðingjanum Dyl­ann Roof að hann heðfi verið dæmdur til dauða gaf hann ættingjum og vinum fólksins sem Roof myrti tækifæri til að ræða við hann.

Hinn 22 ára gamli Roof skaut níu svarta kirkju­gesti til bana í messu í miðborg Char­lest­on í Suður-Karólínu í júní 2015. Hann var dæmd­ur fyr­ir 33 ákæru­liði í síðasta mánuði, þar á meðal hat­urs­glæp sem leiddi til dauða fólks. 

Biblíu­hóp­ur­inn Mot­her Em­anu­el, sem hafði boðið Roof vel­kom­inn, var að hefja loka­bæn sína þegar Roof dró upp vopn sitt og drap fólkið sem var á aldr­in­um 26-87 ára. Roof er mik­ill aðdá­andi Ku Klux Klan-sam­tak­anna og nas­ista og tel­ur hvíta kyn­stofn­inn öðrum æðri.

Roof lokaði augunum í dómsal og forðaðist þar með að horfa framan í ættingja og vini fórnarlambanna. Margir báðu Roof um að opna augun og horfa á þau en hann gerði það ekki.

„Dylann! Dylann! Ég veit að þú heyrir í mér. Ég vildi að þú myndir horfa á mig en ég veit að þú heyrir í mér,“ sagði Jamie Scott en frændi hennar, Tywanza Sanders, var myrtur.

„Hvernig dirfistu að sitja hérna með þinn heimskulega svip og láta eins og þú hafir ekki gert neitt rangt,“ öskraði Ashland Temoney á Roof en frænka hennar var eitt fórnarlambanna.

„Þú ert mesta skræfa sem ég hef séð,“ bætti hún við.

Frétt npr.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert