Snowden tvö ár enn í Rússlandi

Edward Snowden.
Edward Snowden. AFP

Rússnesk stjórnvöld hafa ákveðið að framlengja dvalarleyfi uppljóstrarans Edward Snowden um tvö ár til viðbótar í landinu, segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneyti Rússlands.  

Yfirlýsingin frá Rússlandi kemur strax eftir að Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, mildaði í gær dóm­inn yfir upp­ljóstr­ar­an­um Chel­sea Mann­ing. Mann­ing, sem var hermaður í Banda­ríkja­her, var dæmd í 35 ára fang­elsi árið 2013 fyr­ir að leka gögn­um til Wiki­Leaks. Hún verður látin laus í maí á þessu ári en hún hefur setið í fangelsi frá árinu 2010.

Frétt mbl.is: Obama mild­ar dóm­inn yfir Mann­ing

Snowd­en var grein­andi hjá banda­rísku þjóðarör­ygg­is­stofn­un­inni (NSA) er hann ljóstraði upp um ýmis leynigögn banda­rískra stofn­ana. Þar í landi á hann yfir höfði sér ákær­ur sem gætu orðið til þess að hann þarf að afplána allt að 30 ára fang­els­is­dóm.

Snowden var ekki á svokölluðum stuttlista Obama sem náði yfir þá einstaklinga sem gætu fengið mildari refsingu.

Þegar ljóst var að dómur Manning hafi verið mildaður sagði Snowden á Twitter: „Ég segi það í hreinskilni og af öllu mínu hjarta: Takk Obama.“  

Ekki náðist í lögfræðing Snowden, Anatoly Kucherena, til að staðfesta ákvörðun rússneskra stjórnvalda.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert