Krókódíll og slanga börðust á golfvelli

AFP

Skriðdýr tókust á í Flórída í síðustu viku. Bardaginn fór fram á golfvelli og náðist á mynd.

„Krókódíllinn virðist hafa náð undirtökunum,“ skrifaði Richard Nadler á Facebook en með færslunni birti hann einnig myndir.

Nadler sagði í samtali við NBC að slangan hefði skriðið inn í kjaft krókódílsins og um tíma hefði hann verið stjarfur með augun galopin. Hann segist hafa tekið myndir en ekki séð hvernig leikar fóru að lokum í átökum slöngunnar og krókódílsins. Hann og félagar hans hafi klárað golfhringinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert