Rod Rosenstein, aðstoðardómsmálaráðherra Bandaríkjanna, mun vera á leið í Hvíta húsið þar sem hann býst við því að honum verði sagt upp störfum. Frá þessu greinir bandaríska fréttastofan AP. Fréttastofan Axios segir hins vegar að Rosenstein hyggist í Hvíta húsinu segja sig frá embættinu og hefur það eftir ónafngreindum heimildum.
New York Times hafði í síðustu viku eftir nafnlausum heimildarmönnum að Rosenstein hefði lagt til að hljóðupptaka yrði tekin af forsetanum með leynd, til að svipta hulunni af ringulreiðinni sem ríki í Hvíta húsinu.
Er tillagan sögð hafa verið sett fram á þeim tíma er Trump rak James Comey, þáverandi forstjóra bandarísku alríkislögreglunnar FBI.
Comey hafði á þeim tíma yfirumsjón með rannsókn FBI á tengslum framboðs Trumps og rússneskra ráðamanna. Vísaði Trump til „Rússamálsins“ þegar hann var spurður um ákvörðun sína að reka Comey.
Að sögn New York Times á Rosenstein að hafa rætt um að fá ráðherra stjórnarinnar til að skírskota til 25. greinar stjórnarskrárinnar sem kveður á um að fjarlægja megi forseta úr embætti reynist hann óhæfur til að gegna starfinu.
Á Rosenstein að hafa lagt þetta til á fundum, sem og í samræðum dómsmálaráðuneytisins og FBI.
Hann hefur hins vegar neitað þessu alfarið.