Forseti Kasakstans, Nursultan Nazarbayev, sem hefur verið leiðtogi landsins síðan það fékk sjálfstæði frá Sovétríkjunum, greindi frá afsögn sinni í dag.
Fram kom í sjónvarpsávarpi að ákvörðunin hefði ekki verið auðveld.
Nazarbayev, sem er 78 ára gamall, hefur verið forseti landsins frá 1990. Hann hlaut mótframboð árin 1999, 2005, 2011 og 2015 en stóð ávallt uppi sem sigurvegari. Alþjóðlegar eftirlitsstofnanir gerðu þó í öll skiptin athugasemdir við framkvæmd kosninganna.
„Ég hef ákveðið að segja af mér,“ sagði Nazarbayev í sjónvarpsávarpinu. Þar kom enn fremur fram að Kassym-Jomart Tokayev þingforseti muni taka við sem forseti það sem eftir lifir kjörtímabils.