600 til viðbótar sagt upp á Karólínska

Björn Zoëga var forstjóri Landspítalans, en tók við stjórn Karólínska …
Björn Zoëga var forstjóri Landspítalans, en tók við stjórn Karólínska sjúkrahússins í Stokkhólmi í byrjun þessa árs. mbl.is/Ómar Óskarsson

Karólínska sjúkrahúsið í Svíþjóð, þar sem Björn Zoëga, fyrrverandi forstjóri Landspítalans, er forstjóri, tilkynnti í dag um uppsagnir 600 starfsmanna. Kemur þetta í kjölfarið á því að 550 starfsmönnum var sagt upp í maí á þessu ári. Björn tók við starfi forstjóra í byrjun ársins og hefur á þeim tíma því 1.150 starfsmönnum verið sagt upp í hópuppsögnum. Greint er frá uppsögnunum á vef Dagens nyheter.

Uppsagnirnar í dag ná til 250 lækna og 350 sjúkraliða. Í upphafi þessa árs störfuðu 16 þúsund manns hjá sjúkrahúsinu, en í síðustu hópuppsögn var meðal annars 20% af stjórnendum sjúkrahússins sagt upp. Á sjúkrahúsinu eru um 1.400 rúm. Þá var velta spít­al­ans í fyrra um 18 millj­arðar sænskra króna, and­virði 239 millj­arða ís­lenskra króna.

Mikill hallarekstur hefur verið á sjúkrahúsinu, en í upphafi þessa árs var gert ráð fyrir að tap spítalans yrði 10,6 milljarðar króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert