Kasólétt kona missti fóstur

Leicester er á miðju Englandi.
Leicester er á miðju Englandi. Kort/Google

Kasólétt kona á fertugsaldri missti fóstrið eftir að bifreið ók á hana þar sem hún var hjólandi í borginni Leicester á Englandi á mánudagskvöldið.

Konan er enn á spítala eftir atvikið.

Fertugur heimamaður var handtekinn grunaður um að hafa verið valdur að slysinu með glæfraakstri. Hann er auk þess grunaður um að hafa ekið undir áhrifum vímuefna.

Lögreglan í Leicester hvetur vitni að atvikinu til að veita henni upplýsingar um hvað nákvæmlega gerðist.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert