500 blaðsíður af „leynilegum upplýsingum“

Fyrrum þjóðaröryggisráðgjafinn John Bolton virðist ætla að gefa bókina út …
Fyrrum þjóðaröryggisráðgjafinn John Bolton virðist ætla að gefa bókina út þrátt fyrir mótmæli Hvíta hússins. AFP

Ríkisstjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta hefur beðið alríkisdómara um að fyrirskipa fyrrum þjóðaröryggisráðgjafanum John Bolton að stöðva útgáfu væntanlegrar bókar sinnar um starfstíma sinn í Hvíta húsinu. Rökin sem gefin eru fyrir fyrirskipuninni í málsókn á hendur Bolton eru þau að hann hafi brotið gegn samningi og að Bolton taki áhættu á að afhjúpa leynilegar upplýsingar með útgáfu bókarinnar.

Í málsókninni, sem var lögð fram í alríkisdómstólnum í Washington DC í dag, er fullyrt að 500 blaðsíður í bókinni eða fleiri séu „fullar af leynilegum upplýsingum“. Þá segja saksóknarar að Bolton hafi snúið bakinu við sérstöku ferli Hvíta hússins vegna bókarinnar sem honum hafi verið skylt að ganga í gegn um á grundvelli samninga sem hann skrifaði undir. 

„Bolton skrifaði undir samkomulag við Bandaríkin sem skilyrði fyrir ráðningu sinni í eina viðkvæmustu og mikilvægustu þjóðaröryggisstöðu í Bandaríkastjórn og ætlar sér nú að rifta því samkomulagi með því að taka einhliða ákvörðun um að ferli endurskoðunar á útgáfunni sé lokið og ákveður sjálfur hvort gera eigi leynilegar upplýsingar aðgengilegar almenningi,“ skrifa saksóknarar. 

Tekst á við afleiðingarnar eftir á

Málsóknin er nýjasta útspil Hvíta hússins gegn Bolton eftir viðræður sem hafa staðið í fleiri mánuði á milli þjóðaröryggisráðsins og talsmanna Boltons um það hvort bókin hafi að geyma leynilegar upplýsingar. 

Útgáfufyrirtækið Simon & Schuster hefur áður tilkynnt að bók Boltons, Í herberginu þar sem það gerðist: Endurminningar úr Hvíta húsinu, verði gefin út næstkomandi þriðjudag 23. júní. Bók Boltons hefur nú þegar verið send í vöruhús og hefur Bolton boðað sig í viðtal við sjónvarpsstöðina ABC sem á að fara í loftið næsta sunnudag. 

Heimildarmaður CNN sem stendur Bolton nærri segir að Bolton ætli sér að gefa bókina út á þriðjudag eins og áætlað er. Það þýðir að hann reikni með að takast á við afleiðingar útgáfunnar í kjölfar hennar, ekki fyrir fram. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert