Fordæmdu tilræðið við Navalní

María Mjöll Jónsdóttir, skrifstofustjóri alþjóða- og þróunarsamvinnuskrifstofu, fór fyrir íslensku …
María Mjöll Jónsdóttir, skrifstofustjóri alþjóða- og þróunarsamvinnuskrifstofu, fór fyrir íslensku sendinefndinni þar sem Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, átti ekki heimangengt. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Ástandið í Hvíta-Rússlandi var í brennidepli á tveggja daga fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í Tallinn í Eistlandi sem lauk fyrr í dag. Í yfirlýsingu fundarins var tilræðið við rússneska stjórnarandstæðinginn Alexei Navalní fordæmt.  

Vegna kórónuveirufaraldursins er fundurinn í dag sá fyrsti sem ráðherrar NB8-ríkjanna svonefndu eiga með sér augliti til auglitis á þessu ári en þeir hafa haft reglulegt samráð í gegnum fjarfundabúnað. Eistar fara með formennsku í samstarfi ríkjanna á þessu ári og því var fundurinn haldinn í Tallinn. Þetta kemur fram á vef utanríkisráðuneytisins. 

Þar segir, að málefni Hvíta-Rússlands hafi verið ofarlega á baugi á fundinum enda hafi ríkin átta sýnt samstöðu í gagnrýni sinni á framkvæmd forsetakosninganna þar í ágúst sl. og harkaleg viðbrögð stjórnvalda við víðtækum mótmælum í kjölfarið.

„Í sameiginlegri yfirlýsingu ráðherranna ítrekuðu þeir fyrri yfirlýsingu sína frá 11. ágúst og skoruðu á stjórnvöld í Minsk að leysa pólitíska andstæðinga tafarlaust úr haldi. Ráðherrarnir fordæmdu enn fremur að taugaeitrinu Novichok hefði verið beitt gegn rússneska stjórnarandstæðingnum Alexei Navalní og kölluðu eftir óháðri alþjóðlegri rannsókn á máli hans. Í yfirlýsingunni var einnig lögð áhersla á aukið efnahagslegt samstarf ríkjanna, ekki síst í ljósi efnahagsþrenginga af völdum COVID-19, svo og á samstarf á sviði stafrænna lausna,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins. 


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert