Segir illþýði bera ábyrgð á óeirðum

AFP

Hollenska ríkisstjórnin mun ekki aflétta sóttvarnareglum vegna kórónuveirunnar þrátt fyrir óeirðir sem illþýði ber ábyrgð á. Þetta segir fjármálaráðherra Hollands, Wopke Hoekstra. 

„Þú gefst ekki upp fyrir fólki sem brýtur rúður verslana. Það kemur ekki til greina,“ segir Hoekstra í viðtali við hollensku fréttaveituna ANP.

Hoekstra segir að þeir sem beri ábyrgð á óeirðunum séu ekki hefðbundnir mótmælendur heldur illþýði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert