Filippus prins dvaldi á sjúkrahúsi í nótt

Filippus prins í júlí í fyrra.
Filippus prins í júlí í fyrra. AFP

Filippus prins, hertogi af Edinborg og eiginmaður Elísabetar Englandsdrottningar, var lagður inn á sjúkrahús í London í gærkvöldi og dvaldi hann þar í nótt.

Um varúðarráðstöfun var að ræða, að sögn Buckingham-hallar.

Filippus, sem er 99 ára, var fluttur á King Edward VII-einkasjúkrahúsið að ósk læknis eftir að prinsinum hafði liðið illa.

Sjúkrahúsið þar sem Filippus dvaldi í nótt.
Sjúkrahúsið þar sem Filippus dvaldi í nótt. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert