Forsetahjónin hitta aðstandendur í Miami

Joe og Jill Biden á leið til Flórída.
Joe og Jill Biden á leið til Flórída. AFP

Bandarísku forsetahjónin Joe og Jill Biden héldu til Miami í dag til að hitta aðstandendur þeirra sem létust þegar fjöl­býl­is­hús hrundi til grunna í Surfside í síðustu viku. 

Tala látinna er nú komin upp í 18 manns og meira en 140 er enn saknað. Meðal hinna látnu eru tvö börn, fjögurra og tíu ára.

Tala látinna er nú komin upp í 18.
Tala látinna er nú komin upp í 18. AFP

Joe Biden mun fá kynningu um aðstæður frá borgarstjóra Miami áður en hann mun ávarpa viðbragsaðila. Þá mun hann eiga einkafund með fjölskyldum fórnarlamba. 

Að sögn björgunarsveita eru litlar líkur á að fleiri finnist á lífi en rúmir sex dagar er síðan húsið hrundi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert