Yfir 80 þúsund farin frá Kabúl

Yfir 80 þúsund manns hafa yfirgefið Kabúl, höfuðborg Afganistans, síðan 14. ágúst.

Mikill fjöldi fólks hefur safnast saman fyrir utan alþjóðaflugvöllinn í borginni til að freista þess að komast úr landi og um leið í burtu frá talíbönum.

Að minnsta kosti átta manns hafa látist í ringulreiðinni á flugvellinum.

Talíbanar hafa verið sakaðir um að meina fólki að fara á flugvöllinn eða reyna að hægja á för þess.

Joe Biden Bandaríkjaforseti staðfesti í gær að brottflutningi fólks frá Afganistan muni ljúka í næstu viku og hefur það aukið á kapphlaupið um að yfirgefa landið.

„Því fyrr sem við getum lokið málinu, því betra…hver dagur í landinu eykur hættuna fyrir hermenn okkar,” sagði Biden.

Flóttamenn frá Kabúl á spænskum flugvelli, um 30 km frá …
Flóttamenn frá Kabúl á spænskum flugvelli, um 30 km frá borginni Madríd. AFP
Joe Biden.
Joe Biden. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert