Yfir 80 taldir látnir

Fellibylurinn er talinn vera einn sá stærsti sem hefur skollið …
Fellibylurinn er talinn vera einn sá stærsti sem hefur skollið á Bandaríkin. AFP

Fjöldi þeirra sem lát­ist hafa af völd­um felli­byls­ins Ian fer sí­fellt hækk­andi en talið er að yfir 80 hafi látið lífið af völdum fellibylsins. BBC greinir frá.

Yfirvöld í Flórída hafa í kjölfarið hlotið talsverða gagnrýni fyrir seinbúin viðbrögð við fellibylnum með því að hafa ekki gefið út viðvörun á viðkvæmum svæðum fyrr. Í Lee-sýslu, sem lenti verst í fellibylnum, hafa yfirvöld verið gagnrýnd fyrir að hafa gefið út brottflutningsfyrirmæli 27. september þegar minna en sólarhringur var í að fellibylurinn skall á.

Um það bil 600 þúsund manns eru án rafmagns í Flórída vegna fellibylsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert