Minntist ekkert á endurkjör en hvatti til samstöðu

Joe Biden er hann flutti ræðu sína.
Joe Biden er hann flutti ræðu sína. AFP/Jacquelyn Martin/Pool

Joe Biden Bandaríkjaforseti hvatti til samstöðu og fagnaði auknum hagvexti á meðal verkamannastéttarinnar í stefnuræðu sinni á Bandaríkjaþingi í nótt.

Demókratinn tjáði sig ekkert um hvort hann ætlar að sækjast eftir endurkjöri á næsta ári en þá verður hann orðinn áttræður. „Við skulum klára þessa vinnu,“ sagði hann einungis og átti þar við efnahagsmálin í þágu fjölskyldna í landinu. Hvatti hann þingið til að standa saman þegar kemur að umbótum.

Andstæðingar hans úr röðum repúblikana trufluðu hann umtalsvert á meðan á ræðunni stóð með framíköllum. 

Ræðan stóð yfir í 72 mínútur og minntist Biden fyrst á stríðið í Úkraínu eftir tæpan klukkutíma þegar hann hét því að Bandaríkjamenn myndu styðja Úkraínumenn gegn Rússum „eins lengi og þörf krefur“.

Frá vinstri: Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, Joe Biden og Kevin …
Frá vinstri: Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, Joe Biden og Kevin McCarthy, forseti fulltrúadeildar Banaríkjaþings. AFP/Andrew Caballero Reynolds

Hann sagði einnig að bregðast þyrfti við Kínverjum í hvert skipti sem þeir „ógna fullveldi okkar“, en í síðustu viku skutu Bandaríkjamenn niður kínverskan loftbelg nærri strönd Suður-Karólínu.

Biden sagði að tveimur árum eftir að stuðningsmenn forvera hans í embætti forseta, Donalds Trumps, réðust inn í þinghús Bandaríkjanna stæði lýðræðið í Bandaríkjunum eftir styrkum fótum.

AFP/Win McNamee/Getty

Á meðan á ræðunni stóð brosti Biden stundum og grínaðist en reiddist einnig. Hann lauk ræðu sinni, sem tugir milljóna Bandaríkjamanna fylgdust með í sjónvarpinu, með því að segja að sál þjóðarinnar væri sterk.

Foreldrar Tyre Nichols voru viðstaddir ræðuna á þinginu. Hann lést í byrj­un janú­ar eft­ir áverka sem hann hlaut við hand­töku. Fimm lög­reglu­menn hafa verið ákærðir fyr­ir að hafa drepið hann. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert