Pútín vonast eftir friðsamlegri lausn

Forsetinn minntist ekki orði á vopnahlé sem Aserar og Armenar …
Forsetinn minntist ekki orði á vopnahlé sem Aserar og Armenar féllust á í morgun. AFP

Vladimír Pútín Rússlandsforseti kveðst vona að friðsamleg lausn verði fundin á deilum aðskilnaðarsinna Nagornó-Karabak-héraðsins og Aserbaídsjan. Forsetinn minntist ekki orði á vopnahlé sem báðar hliðar féllust á fyrr í dag. 

„Ég vona að við getum dregið úr átökunum og fundið lausnir til að finna friðsamlegri farveg,“ sagði Pútín á fundi við utanríkisráðherra Kína, Wang Yi, í dag. Sagði Pútín að Rússland væri í nánum samskiptum við báðar fylkingar.

„Ég hef ekki enn fengið þær upplýsingar“ 

Enn er óljóst hvort myndefni sem var sent út í ríkissjónvarpi Rússlands frá átökunum hafi verið tekið upp fyrir eða eftir að báðar hliðar féllust á vopnahlé.

Dimítrí Peskov, talsmaður rússneskra stjórnvadla, kvaðst ekki getað tjáð sig um vopnahléssamkomulagið. 

„Ég hef ekki enn fengið þær upplýsingar,“ sagði hann við fréttamenn á daglegum blaðamannafundi.

Rússar sinnt friðargæslu síðan 2020

Rússar hafa sinnt friðargæslu í landinu síðan 2020, en Aserbaídsjan og sjálf­skipuð stjórn aðskilnaðarsinnaðra Armena hafa eldað grátt silfur í áraraðir, en héraðið er landlukt innan landamæra Aserbaídsjan þrátt fyrir að stærsti íbúahópur héraðsins séu Armenar. 

Stjórn aðskilnaðarsinnana og yfirvöld Aserbaídsjan tilkynntu í morgun að báðar hliðar hefðu fallist á vopnahlé og að viðræður um sameiningu svæðisins við Aserbaídsjan hefðust á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert