Elva Dögg Melsted valin Ungfrú Ísland.is

Claudia Schiffer, Linda Pétursdóttir og Yukta Moochley voru í dómnefnd …
Claudia Schiffer, Linda Pétursdóttir og Yukta Moochley voru í dómnefnd keppninnar. mbl.is/Halldór Kolbeins

Elva Dögg Melsteð hreppti titilinn Ungfrú Ísland.is í fegurðarsamkeppni sem fram fór í Perlunni í gærkvöldi. Þýska fyrirsætan Claudia Schiffer sat í dómefndinni og Yukta Moochley, sem valin var Ungfrú heimur 1999 var heiðursgestur keppninnar. Sextán stúlkur víðs vegar af landinu tóku þátt í keppninni.

Aðstandendur Ungfrú Ísland.is eru Linda Pétursdóttir, Ásta Kristjánsdóttir, Þórey Vilhjálmsdóttir og Hendrikka Waage. Ásta Kristjánsdóttir er framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Dómnefnd skipuðu: Linda Pétursdóttir, Þorgrímur Þráinsson, Baldvin Jónsson, Hugrún Ragnarsson, A.A. Gill, Claudia Schiffer og Tim Jeffries.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert