Fyrir þingfestingu nýrrar ákæru í Baugsmálinu í Héraðsdómi Reykjavíkur sagði Jón Gerald Sullenbergar að hann væri saklaus af ákærunum. „Sannleikurinn er oft erfiður, en hann er sagna bestur," sagði hann í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins. „Þetta er bara eitt verkefnið í viðbót sem ég þarf að taka að mér og ég mun afgreiða það eins og allt annað sem ég geri," sagi Jón Gerald að lokum.