Viskukýrin

Í stað hefðbundinna bjölluspurninga þá áttu keppendur að ná í …
Í stað hefðbundinna bjölluspurninga þá áttu keppendur að ná í sixpensara sem sat á gervijúgrum og setja á höfuð sér til að fá svarrétt. Eins og sjá má þá lögðu keppendur allt undir. mynd/Guðrún

Stúdentaráð Landbúnaðarháskóla Íslands stóð í gærkvöldi fyrir spurningakeppninni Viskukýrin 2007. Þetta er árlegur viðburður á vegum Stúdentaráðsins, sem hefur notið sívaxandi vinsælda. Var bekkurinn þétt setinn í matsal Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri þetta skiptið og skemmtu áhorfendur sér hið besta. Stjórnandi keppninnar og spyrill var Logi Bergmann Eiðsson, sem hefur mikla reynslu í slíku hlutverki.

Að þessu sinni mættu átta lið til keppni. Spurningarnar voru margvíslegar, almenns eðlis og mjög sérhæfð viðfangsefni úr landbúnaði, t.d. hver væri faðir stóðhestins Stála frá Kjarri og hvort nautið Þollur 99008 væri rauðbrandhuppóttur eða rauðbrandsokkóttur. Þá voru margs konar tóndæmi og myndir, m.a. af ýmsum smærri kauptúnum landsins, lagðar fyrir keppendur.

Fram kemur á heimasíðu Landssambands kúabænda, að sigurlið keppninnar var lið heimamanna, skipað þeim félögum Sveinbirni Eyjólfssyni framkvæmdastjóra Nautastöðvar BÍ, Magnúsi B. Jónssyni prófessor í búfjárrækt við LBHÍ og Hauki Júlíussyni forstjóra verktakafyrirtækisins Jörva. Hlutu þeir verðlaunagripinn Viskukúna, sem hannaður var af Bjarna Guðmundssyni prófessor í bútækni og smíðaður af Hauki Þórðarsyni starfsmanni Landbúnaðarháskólans.

Logi Bergmann var þjóðlegur í spyrilshlutverkinu.
Logi Bergmann var þjóðlegur í spyrilshlutverkinu.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert