Nýjar upplýsingar úr gömlum sprungum

Rannsóknir á bergsprungum í Borgarfirði og á Suðurlandi hafa leitt í ljós að í Borgarfirði var áður jarðskjálftabelti sem varð til af sömu orsökum og jarðskjálftabeltið á Suðurlandi.

Sprungur í bergi í Borgarfirði líkjast skjálftasprungum á Suðurlandi. Sumar þeirra hafa opnað leiðir fyrir innskot kviku og ráðið miklu um hringrás jarðhita. Þetta er meðal niðurstaðna úr verkefni sem kallað er rannsókn á bergsprungum og jarðvísindamenn hafa unnið að undanfarin ár.

Leiðandi jarðfræðingur í þessum rannsóknum er dr. Maryam Khodayar. Samstarfsmenn hennar hafa verið dr. Páll Einarsson prófessor, dr. Hjalti Franzson og Freysteinn Sigurðsson. Yfirumsjón með verkefninu hefur verið í höndum Sveinbjörns Björnssonar, fyrrum deildarstjóra á Orkustofnun.

Skjálftabeltið á Suðurlandi virðist færast suður með tíma. Það hefur skilið eftir sig sprungur í uppsveitum Árnessýslu sem skýra mikinn jarðhita þar. Rannsóknirnar þykja hafa skýrt betur ýmislegt í jarðsögu Íslands.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert