Saksóknari fær sextán fastráðna

Þau Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Gylfi Magnússon …
Þau Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra sátu fyrir svörum klukkan eitt. mbl.is/Golli

Endurskoðuð áætlun um umfang embættis sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins gerir ráð fyrir því að fastir starfsmenn hans verði allt að sextán talsins, en þá eru ekki taldir með þeir erlendu sérfræðingar sem reiknað er með að starfi með saksóknaranum.

Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra, sagði á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu í dag að starfsmannafjöldi embættisins gæti því orðið allt að tuttugu á þessu ári.

Eva Joly, franskur dómari og rannsóknardómari, sem fengin hefur verið til að ráðleggja íslenskum stjórnvöldum þegar kemur að saksókn vegna bankahrunins, er væntanleg til landsins á morgun að sögn Rögnu og verður þá fundað með henni um þessi endurskoðuðu áform.

Eva Joly hefur áður sagt í samtali við Morgunblaðið að hún telji ekki hægt að rannsaka þau mál sem embætti sérstaks saksóknara á að rannsaka, með færri en tuttugu starfsmönnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert