Hannes snýr aftur heim

Eskfirðingar flögguðu fyrir lækni sínum, Hannesi Sigmarssyni, í dag.
Eskfirðingar flögguðu fyrir lækni sínum, Hannesi Sigmarssyni, í dag. mbl.is/Helgi Garðarsson

Hannes Sigmarsson, yfirlæknir við Heilsugæslu Fjarðabyggðar, ætlar að snúa aftur heim til Eskifjarðar og mæta í vinnu á ný eftir að embætti ríkissaksóknara ákvað að vísa kæru Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) frá. Hannesi var þann 12. febrúar vikið tímabundið frá störfum vegna rannsóknar á reikningum frá honum. Eskfirðingar fögnuðu niðurstöðu ríkissaksóknara í dag með því að flagga fyrir lækninum sínum en Hannes hefur starfað sem læknir á Austurlandi í tæpa tvo áratugi.

Mál Hannesar hafði verið til skoðunar hjá HSA nokkra hríð áður en til kæru kom og snéri einkum að vinnulagi og kostnaði sem mun hafa verið mjög á skjön við það sem tíðkast annars staðar innan HSA, samkvæmt frétt Austurgluggans frá því í febrúar. Var þar einkum um að ræða vinnu læknisins utan dagvinnutíma.

Hannes var ánægður með niðurstöðu ríkissaksóknara er fréttamaður mbl.is náði í hann í dag og segist hann stefna að því að mæta sem fyrst aftur til starfa. Hann segir að málið hafi tekið á og þá ekki síst fyrir fjölskyldu hans. Hann hefur starfað erlendis að undanförnu en geri ráð fyrir því að mæta fljótlega til starfa á ný á Austurlandi.

Að sögn Hannesar er niðurstaða ríkissaksóknara sú sama og  rannsóknarlögreglunnar á Austurlandi um að ekkert fyndist athugavert við störf hans og ekki væri grundvöllur fyrir kæru á hendur honum. Því hafi ríkissaksóknaraembættið ákveðið að fella málið niður. 

Einar Rafn Haraldsson, forstjóri HSA,  kannaðist ekki við að niðurstaða væri komin í málið þegar mbl.is hafði samband við hann í dag en hann hefur ekki fengið upplýsingar um slíkt frá embætti ríkissaksóknara.

Hjá embætti ríkissaksóknara fékkst það staðfest að bréf um niðurstöðu málsins hafi verið sent frá embættinu í dag án þess að upplýsingar væru gefnar um innihald þess.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert